Húsnæði · Eignamyndun · 13 borgir · 2000–2025

Sama íbúð, ólíkar borgir — hvar byggist eigið fé hraðast upp?

Veldu tvo staði og berðu saman hlið við hlið hvernig eigið fé þitt byggist upp ef þú hefðir keypt íbúð og fjármagnað hana á staðnum. Sama kaupverð, sama útborgun, sami lánstími — það sem breytist er húsnæðisverð borgarinnar, vextir gjaldmiðilsins og hvort lánið er verðtryggt eða ekki.

2005
40 m.kr.
Verðlag í krónum — jafnvirði reiknað fyrir hvora borg á gengi kaupárs
80%
Flutningar — selja og kaupa nýtt (eigið fé endurfjárfest; verð í krónum, jafnvirði í hvorri borg)
Sýna allt í

Aðferð og heimildir

Líkanið. Hver hlið kaupir íbúð á sama (nafn)verði í gjaldmiðli staðarins, með sömu útborgun og 40 ára jafngreiðslulán. Verðmæti íbúðar fylgir húsnæðisvísitölu borgarinnar; eigið fé = verðmæti − eftirstöðvar láns. Verðtryggt íslenskt lán ber 4,1% raunvexti og höfuðstóllinn er endurreiknaður með vísitölu neysluverðs ár hvert. Öll önnur lán (þ.m.t. evrulán á Íslandi) eru óverðtryggð jafngreiðslulán á nafnvöxtum gjaldmiðilsins, föstum við kaupár.

Samanburður. Sjálfgefið er hvor hlið í sínum gjaldmiðli — þá er borið saman hlutfall eigin fjár af verðmæti, ávöxtun (margfeldi) og lögun ferilsins. Með „Sýna allt í" má umreikna báðar hliðar í einn gjaldmiðil; þá er notað raungengi hvers árs (ársmeðaltöl) svo gengisbreytingar — t.d. fall krónunnar 2008 — koma fram. Gengi: viðmiðunargengi á borð við ECB (ársmeðaltöl), til viðmiðunar.

Gögn — húsnæðisverð (opinberar raðir, endurstilltar á 2000=100). Reykjavík: HMS / Þjóðskrá (höfuðborgarsvæði). London: Nationwide (svæðisvísitala). Amsterdam: Hagstofa Hollands (CBS) — 2024–25 framlengt. Kaupmannahöfn: Danmarks Statistik (meðalsöluverð einbýlis í Byen København). Stokkhólmur: SCB (Stór-Stokkhólmur, sér- og parhús). Ósló: SSB (Ósló og Bærum). San Francisco, Los Angeles, Miami, New York: S&P CoreLogic Case-Shiller. Vextir: USD 15 ára fast (Freddie Mac), EUR (Seðlabanki Evrópu), GBP (Englandsbanki IUMBV34), DKK (Danmarks Nationalbank), NOK (SSB), SEK (2 ára húsnæðisskuldabréf + ~1,0 prósentustigs álag), CHF (til viðmiðunar). Verðbólga Íslands: Hagstofa Íslands.

Fyrirvari. París notar landsvísitölu Frakklands (INSEE) sem staðgengil og Frankfurt og Zürich styðjast við landsvísitölu — þessar þrjár eru til viðmiðunar fremur en eiginlegar borgartölur. Fáein fyrstu ár nokkurra vaxtaraða og verðmæti Amsterdam 2024–25 eru áætluð þar sem opinber gögn náðu ekki alla leið. Markmiðið er að sýna stærðargráðu og þróun, ekki nákvæmt verðmat.

Skýringarlíkan — ekki fjármála-, skatta- eða fjárfestingarráðgjöf.